onsdag 21 november 2007

Stenstaliden 2 A

Ef einhver vill senda jólakort.....
Ég lofaði víst að vera duglegri í "vetur" að skrifa í bloggið, en það er engin vetur ennþá, ekki hér, bara svona mjög fallegt og gott haust.
Þessa viku er ég inni í nokkrum bekkjum og svara spurningum um Island og segja frá Islandi því þessi árgangur lesa um Island. Stundum er það mjög gaman, krakkarnir mjög áhugasamir og spurja og spekulera mikið, hafa verið dugleg að lesa um allt mögulegt, en síðasti bekkur var ekkert sérstakur, þau voru ekki mikið áhugasöm yfirleitt. Ég hef gert nokkara settningar á ísl sem eru flestar líkt sænskunni og svo nokkrar sem eru með ísl stöfum og ekkert líkt, svo þau fá að reyna að þýða þetta og er alveg frábært hvað þau geta þetta rétt, svo í raun eru tungumálin ekki svo langt frá hvort öðru.

Núna erum við búin að búa okkur inn í nýju íbúðina en eigum samt langt í land. Stig tæmdi hús upp á 147 ferm og miklu var hennt og gefið á svona "loppis" sem er selt og allt rennur í góðan sjóð til hjálpar börnum og fleira. Afgangurinn var í geymslu en það er bara vandamálið hvað maður á að gera við þetta allt, hann er frekar lélegur að "henda" vill hafa þetta og þetta áfram, en ég hendi grimmt miklu, enda hef ég ekki fest mig við mikið dót, bý ekki svo lengi á sama stað.....svo aukaherbergið er ennþá fullt af dóti, samt erum við búin að fara með 3-4 bíla fulla af dóti til loppis og förum með 2 í dag.....svo einhverntíman verður hægt að vera í herberginu......en manni finnst þetta aldrei ætla að taka enda. Verst að dætur mínar eru svo langt í burtu, því þá gætuð þið kanski tekið eitthvað af því sem maður vill ekki henda fyrr en þið sagt ykkar.....eins og handsaumaðar myndir, sem hafa verið til síðan þið voruð litlar, en ég ætla að koma þeim fyrir í geymslunni, því við ætlum að hafa flest nýtt, því við viljum það, sameiginlegt dót.

Ég er léleg að vara á Msn heima nú orðið, svo þið vitið, en ekkert mál ef þið sendið sms þá kem ég í tölvuna, erum nefnilega með svona lausa tölvu (hvað heitir það) og hún verður svo fljótt batterílaus.....ef við höfum hana oppna lengi.

Einn mánuður þar til við förum í sólina í tvæf vikur og það er mjög mikið tillhlökkunnarefni til að geta hvílt sig eftir erfiðan tíma undanfarið með að gera upp heila íbúð og svo fluttningurinn og allt sem því fylgir.....

Núna hef ég skrifað á fullum launum og er það örugglega harðbannað en ég er ein svo engin sér mig nema stóri bróðir núna......
Læt þetta duga núna......

6 kommentarer:

Anonym sa...

kvitt mamma besta:)

Anonym sa...

Til hamingju með nýja heimilið :)

Mánuður í sólina já... bara 12 dagar hjá okkur ;)

Anonym sa...

Ég væri sko til í að skoða dótið þitt.... hvernig væri að þú tækri myndir af útsaumsdótinu og birtir á blogginu og "við" fengjum að skoða.... ?????

Kveðja, Stefanía

Anonym sa...

Ég kan það ekki, birta fleiri myndir í einu..????...en ég get sent til ykkar sem vilja sjá.

Anonym sa...

Það var ekki meiningin að vera anonym....ég kann ekki á mitt eigið blogg ha, ha.

Anonym sa...

fínt fólk kemur alltaf seint...

*kremt* er það ekki?..hmm..